Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 14:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hjólin farin að snúast í framherjaleit Arsenal
Benjamin Sesko.
Benjamin Sesko.
Mynd: EPA
Hjólin eru heldur betur farin að snúast í framherjaleit Arsenal og nú renna öll vötn til Benjamin Sesko, sóknarmanns RB Leipzig í Þýskalandi.

Samkvæmt Sky í Þýskalandi þá hefur Arsenal haft formlegt samband við Leipzig vegna Sesko.

Fabrizio Romano segir þá að viðræður gangi vel bæði við Leipzig og leikmanninn.

Sesko er sagður vera með riftunarverð í samningi sínum upp á um 80 milljónir evra.

Hinn 22 ára gamli Sesko hefur leikið með Leipzig frá 2023 og er hann búinn að skora 39 mörk í 87 leikjum fyrir félagið.
Athugasemdir
banner