Nemanja Matic, miðjumaður Lyon í Frakklandi, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann eftir að hann huldi skilaboð á treyju sinni sem voru ætluð til að sporna við hómófóbíu.
Skilaboðin voru hluti af herferð frönsku úrvalsdeildarinnar til að vinna gegn fordómum um samkynhneigð.
Skilaboðin voru hluti af herferð frönsku úrvalsdeildarinnar til að vinna gegn fordómum um samkynhneigð.
Hinn 36 ára gamli Matic ákvað að hylja skilaboðin á treyju sinni með límbandi.
Ekki er vitað af hverju Matic gerði þetta en hann vildi ekki tjá sig um málið.
Hann hefur nú verið dæmdur í tveggja leikja bann en það er óvíst hvort að hann verði áfram í Frakklandi þar sem samningur hans við Lyon er að renna út. Því gæti verið að þetta bann skipti engu máli.
Athugasemdir