Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
   þri 05. september 2017 21:49
Brynjar Ingi Erluson
Emil Hallfreðs: Ég held að það sé bara kjaftæði
Icelandair
Emil Hallfreðsson var magnaður í kvöld
Emil Hallfreðsson var magnaður í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður Íslands, var ánægður með 2-0 sigurinn á Úkraínu í kvöld en hann var með betri mönnum leiksins.

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  0 Úkraína

Emil fékk gult spjald strax á 2. mínútu og var þá í hættu á að fá annað gula en það hafði lítil áhrif á hann. Leikur hans var óaðfinnanlegur í þeim síðari og var hann útnefndur einn af bestu mönnum leiksins.

„Virkilega mikilvægt. Þetta var duga eða drepast í kvöld eftir síðasta leik og ef við ætlum að vera áfram almenninlega inn í þessum riðli," sagði Emil.

„Ég held ég hafi brotið nokkrum sinnum á mér eftir það, það er ekki eins og maður fái gult spjald í hvert einasta skipti sem maður brýtur af sér. Auðvitað óþægilegt að vera með gult spjald eftir fyrstu mínútu en ég held að maður sé með smá reynslu þannig mér leið aldrei eins og ég væri tæpur."

Íslenska liðið byrjaði að pressa hærra í síðari hálfleik og það skilaði strax marki. Í kjölfarið varð sjálfstraustið meira og Ísland lokaði dæminu.

„Halda áfram og gefa meira í. Við vissum að þeir væru búnir að eyða smá orku í fyrri hálfleik og við ætluðum að halda skipulagi og sækja þegar færi myndi gefast, þá vissum við að við myndum opna svæði fyrir okkur."

„Það setur góðan tón og stuðningurinn og allt með. Þetta gefur okkur sjálfstraust aukalega, þannig það var mjög gott,"
sagði Emil ennfremur.

Fyrra markið var svolítið umdeilt en Jóhann Berg Guðmundsson virtist brjóta á markverði Úkraínu.

„Kem ég ekki með crossinn og Jói touchar hann og Gylfi tekur reboundið á mark. Ég held að það sé kjaftæði að hann hafi brotið á honum. Voru þeir ekki bara að biðja um það?"

„Tyrkjaleikurinn í næst og verður gríðarlega erfiður leikur. Þessi leikur í kvöld fer út í sandinn ef við verðum ekki í standi eftir mánuð,"
sagði hann í lokin.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner
banner