Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
   fös 06. maí 2016 22:31
Arnar Daði Arnarsson
Luka Kostic: Við erum vanari gervigrasi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Luka Kostic þjálfari Hauka var ekki óánægður með leikmenn sína þrátt fyrir 3-2 tap gegn Grindavík í 1. umferð Inkasso-deildarinnar.

Haukar komust yfir í byrjun leiks en Grindvíkingar jöfnuðu um miðjan fyrri hálfleikinn. Haukar byrjuðu hinsvegar seinni hálfleikinn ansi illa og eftir 12 mínútna leik voru þeir tveimur mörkum undir.

Lestu um leikinn: Grindavík 3 -  2 Haukar

„Ég veit ekki hvað gerist í byrjun seinni hálfleiks. Það er korter sem gerir útslagið í þessum leik. Mér finnst við hafa fullt control á leiknum í fyrri hálfleik og spiluðum vel. Ég var mjög ánægður með liðið í fyrri hálfleik. En byrjunin á seinni hálfleik kostar okkar stig," sagði Luka sem tók það fram að þetta hafi verið í fyrsta sinn sem liðið komist í snertingu við gras.

„Þetta er fyrsta snerting okkar á grasi og við vorum frekar ragir að reyna spila boltanum og vorum frekar að reyna setja boltann í svæði. Þegar við reyndum að spila boltanum þá var þetta frekar hægt. Við erum vanari gervigrasinu þar sem boltinn er miklu fljótari og gengur hraðar á milli manna."

Luka sagði að það hafi til dæmis komið í bakið á þeim í jöfnunarmarki Grindavíkur.

„Fyrsta markið þeirra kostar okkar það. Mislukkuð sending hjá okkur og við töpum boltanum og þeir skora. Ég er ekki svekktur yfir spilamennsku liðsins eða frammistöðu. Við skorum tvö mörk og áttum margar flottar sóknir sem við náðum ekki að klára," sagði Luka sem segir það ekki vera mistök að æfa ekki á grasi fyrir grasleiki.

„Við ákváðum það að við ætlum að æfa allan tímann á gervigrasi. Rannsóknir sýna það erlendis frá, frá knattspyrnuþjóðum sem eru komnir lengra en við, segja að það séu ekki mistök. Það er langbest að æfa bara á einu undirlagi," sagði þjálfari Hauka í viðtali við Fótbolta.net eftir leik.
Athugasemdir
banner
banner