Vináttuleikur Skotlands og Íslands er hafinn á Hampden Park í Skotlandi. það eru einhver óvænt tíðindi í byrjunarliði Íslands.
Elías Rafn Ólafsson fær tækifæri í markinu á kostnað Hákon Rafns Valdimarssonar sem hefur átt fast sæti undanfarið. Lárus Orri Sigurðsson, er hrifinn af þessari ákvörðun Arnars Gunnlaugssonar en hann talaði um Elías í upphitun Stöðvar 2 Sport fyrir leikinn.

Lestu um leikinn: Skotland 1 - 3 Ísland
„Held að það sé út af því að þetta sé erfiðari leikurinn af þessum tveimur (gegn Norður Írlandi á þriðjudaginn). Ég held að hann vilji gefa honum almennilegt próf í íslenska markinu. Ég held að hann sé alveg búinn að sjá það sem Hákon er að gefa liðinu," sagði Lárus.
Þá er Hörður Björgvin Magnússon í byrjunarliðinu en hann er að byrja sinn fyrsta leik síðan í september 2023 en hann hefur verið að ganga í gegnum erfið meiðsli. Kantmaðurinn Mikael Egill Ellertsson er að spila í bakverði.
„Þetta eru skrítnir tímar að leikmaður sé að byrja leik fyrir íslenska landsliðið eftir að hafa spilað einhverjar 18 mínútur eins og Hörður er búinn að gera. Ég er samt ánægður að hann skuli henda honum þarna inn, aðeins að kynna hann fyrir kerfinu og finna lyktina af grasinu," sagði Lárus Orri.
„Ég er ánægður að sjá Mikael Egil í bakverðinum, hann er búinn að spila vængbakvörð úti. Ég á von á því að þegar við sækjum þá fer hann upp og við sitjum eftir með þriggja manna til baka."
Athugasemdir