Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cleverley líka inn í myndinni hjá Plymouth
Tom Cleverley.
Tom Cleverley.
Mynd: EPA
Eins og sagt var frá á dögunum, þá er Jack Wilshere líklegastur til að taka við Íslendingaliði Plymouth.

En hann er ekki sá eini inn í myndinni. Tom Cleverley, fyrrum leikmaður Manchester United, kemur einnig til greina.

Wilshere og Cleverley eru báðir á leið í viðtal hjá félaginu en það sama má segja um Des Buckingham sem var síðast stjóri Oxford United.

Cleverley er fyrrum leikmaður Manchester United, Everton og Watford.

Cleverley er 35 ára og lék á sínum tíma 13 landsleiki fyrir England. Hann stýrði Watford í rúmt ár og er það hans eina stjórastarf til þessa.
Athugasemdir
banner