Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 19:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hálfleikur: Ísland yfir á Hampden Park
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland er yfir gegn Skotlandi á Hampden Park í hálfleik í æfingaleik liðanna.

Andri Lucas Guðjohnsen kom Íslandi yfir snemma leiks þegar hann skoraði glæsilegt mark með skoti fyrir utan teiginn.

Lestu um leikinn: Skotland 1 -  3 Ísland

Skotar náðu að jafna þegar John Souttar var miklu sterkari í baráttunni gegn Herði Björgvin eftir hornspyrnu og fékk nóg pláss til að stanga boltann í netið.

Það var hins vegar á lokamínútum fyrri hálfleiks að Ísland fékk hornspyrnu. Albert Guðmundsson tók spyrnuna og boltinn skoppaði milli manna inn á teignum og fór að lokum af Lewis Ferguson og í netið.

Sjáðu seinna mark Íslands hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner