Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Newcastle í viðræðum um Elanga
Mynd: EPA
Newcastle hefur áhuga á að fá Anthony Elanga frá Nottingham Forest. Daily Mail greinir frá því að Newcastle hafi haft samband við Forest.

Forest er þó talið vilja fá ansi háa upphæð fyrir leikmanninn.

Newcastle hefur lengi haft áhuga á honum en Forest hafnaði rúmlega 35 milljón punda tilboði frá Newcastle í leikmanninn síðasta sumar.

Talið er að Newcastle þurfi að borga um 50 milljónir punda til að fá hann í sumar.
Athugasemdir
banner