Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Undankeppni HM í dag - England heimsækir Andorra
Mynd: EPA
England heimsækir Andorra í K-riðli í undankeppni HM í kvöld. England er á toppi riðilsins með sex stig eftir tvær umferðir. Andorra er á botninum án stiga.

Serbía mætir til leiks í sama riðli og heimsækir Albaníu sem er með þrjú stig.

Holland spilar sinn fyrsta leik í G-riðli en liðið heimsækir Finnland sem er með fjögur stig eftir tvær umferðir. Malta og Litháen mætast í sama riðli en liðin eru með núll og eitt stig.

Bosnía er með sex stig í H-riðli en liðið fær San Marino í heimsókn sem er án stiga. Rúmenía er með þrjú stig en liðið heimsækir Austurríki sem er að fara spila sinn fyrsta leik í keppninni.

laugardagur 7. júní

Undankeppni HM
13:00 Bosnía - San Marino
16:00 Malta - Litáen
16:00 Andorra - England
18:45 Austurríki - Rúmenía
18:45 Albanía - Serbía
18:45 Finnland - Holland
Athugasemdir
banner
banner
banner