Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   fös 06. júní 2025 20:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Frábær sigur Íslands gegn Skotlandi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: EPA
Skotland 1 - 3 Ísland
0-1 Andri Lucas Guðjohnsen ('8 )
1-1 John Souttar ('25 )
1-2 Lewis Ferguson ('45 , sjálfsmark)
1-3 Guðlaugur Victor Pálsson ('52 )
Lestu um leikinn

Ísland vann frábæran sigur á Skotlandi í æfingaleik á Hampden Park í kvöld.

Skotar urðu fyrir áfalli snemma leiks þegar markvörðurinn reynslumikli Angus Gunn þurfti að fara af velli og Cieran Slicker kom inn á í sínum fyrsta landsleik. Hann átti eftir að koma mikið við sögu.

Stuttu eftir að hann kom inn á átti hann sendingu fram völlinn sem fór beint á Stefán Teit Þórðarson. Hann skallaði boltann á Andra Lucas Guðjohnsen sem átti frábært skot fyrir utan teiginn og boltinn söng í netinu.

Íslenska liðið var sterkari aðilinn í upphafi leiks en Skotar unnu sig inn í leikinn og jöfnuðu metin þegar John Souttar vann Hörð Björgvin í baráttunni eftir hornspyrnu og skallaði boltann í netið.

Undir lok fyrri hálfleiks fékk Ísland hornspyrnu og Lewis Ferguson skoraði sjálfsmark.

Snemma í seinni hálfleik skoraði Guðlaugur Victor Pálsson meeð skalla eftir aukaspyrnu frá Alberti Guðmundssyni. Boltinn fór beint á Slicker sem nagar sig í handabökin að hafa ekki gert betur.

Skotar komu boltanum í netið eftir klukkutíma leik en Scott McTominay var dæmdur rangstæður og markið stóð því ekki. Fleira markvert gerðist ekki og sigur Íslands í höfn.

Næsti leikur Íslands er æfingaleikur gegn Norður-Írlandi í Belfast á þriðjudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner