Búið er að opinbera byrjunarlið Íslands sem mætir Skotlandi í vináttulandsleik sem hefst 18:45.
Ísland býr sig undir undankeppni HM sem fer fram í byrjun september en strákarnir okkar eru með Frakklandi, Úkraínu og Aserbaídsjan í riðli. Sigurliðið fer beint á HM en liðið í öðru sæti í umspil.
Arnar Gunnlaugsson hefur tilkynnt byrjunarliðið en athygli vekur að Hörður Björgvin Magnússon fer beint í byrjunarliðið. Hann er því að byrja sinn fyrsta leik síðan í september 2023 en hann hefur verið að ganga í gegnum erfið meiðsli.

Fyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson er ekki með í þessu verkefni vegna meiðsla en Andri Lucas Guðjohnsen er fremsti maður. Hákon Arnar Haraldsson er með fyrirliðabandið.
Elías Rafn Ólafsson fær tækifæri í markinu.
Þá vekur athygli að Mikael Egill Ellertsson er vinstri bakvörður í fjögurra manna varnarlínu eftir því sem við komumst næst.

Athugasemdir