Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjöundi kostur Skota endaði í markinu
Angus Gunn meiddist
Angus Gunn meiddist
Mynd: EPA
Cieran Slicker vill gleyma gærdeginum sem fyrst. Þessi 22 ára gamli Skoti lék sinn fyrsta landsleik í markinu gegn Íslandi.

Hann er mjög aftarlega í goggunarröðinni en hann kom inn á fyrir meiddan Angus Gunn snemma leiks. Craig Gordon, Liam Kelly, Zander Clark og Robby McCrorie voru fjarverandi vegna meiðsla.

Lestu um leikinn: Skotland 1 -  3 Ísland

Steve Clarke landsliðsþjálfari Skota mun kalla Callan McKenna inn í hópinn til að koma inn í markið í æfingaleik gegn Liechtenstein.

Slicker kom inn á snemma leiks í gær vegna meiðsla Angus Gunn. Stuttu síðar átti hann sendingu sem fór beint á Stefán Teit sem skallaði boltann á Andra Lucas sem skoraði glæsilegt fyrsta mark leiksins.

Markmanninum mistókst síðan að halda boltanum frá markinu þegar Lewis Ferguson skoraði sjálfsmark. Guðlaugur Victor innsiglaði síðan sigurinn þegar hann átti skalla sem fór beint á Slicker en honum tókst ekki að halda boltanum frá markinu.

Martraðarfrumraun Slicker - hver er sjöundi kostur Skota? (BBC)

Athugasemdir