
Íslenska liðið er að eiga frábæran leik í Skotlandi en liðið er komið með tveggja marka forystu.
Liðið var með 2-1 forystu í hálfleik þar sem Andri Lucas Guðjohnsen skoraði frábært mark áður en Skotar jöfnuðu en heimamenn skoruðu síðan sjálfsmark undir lok fyrri hálfleiks.
Liðið var með 2-1 forystu í hálfleik þar sem Andri Lucas Guðjohnsen skoraði frábært mark áður en Skotar jöfnuðu en heimamenn skoruðu síðan sjálfsmark undir lok fyrri hálfleiks.
Lestu um leikinn: Skotland 1 - 3 Ísland
Guðlaugur Victor Pálsson kom Íslandi síðan í 3-1 þegar hann átti frábæran skalla eftir aukaspyrnu frá Alberti Guðmundssyni.
Cieran Slicker, markvörður Skota, hefur hins vegar litið afar illa út. Hann fékk boltann beint á sig eftir skallann frá Guðlaugi Victori og átti að gera betur en við hugsum ekki um það. Svo gaf hann líka á Stefán Teit sem lagði upp fyrsta markið.
Sjáðu þriðja mark Íslands hér fyrir neðan.
Athugasemdir