Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Postecoglou: Þetta kvöld í Bilbao var hápunktur tveggja ára erfiðisvinnu
Mynd: EPA
Ange Postecoglou var rekinn sem stjóri Tottenham í dag eftir tvö ár í starfi. Ástæðan er slakur árangur í úrvalsdeildinni en liðið vann Man Utd í úrslitum Evrópudeildarinnar í Bilbao undir lok tímabilsins í ár.

Postecoglou hefur sent frá sér yfirlýsingu og þakkar

„Þegar ég rifja upp tíma minn sem knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur er stolt aðaltilfinningin."

„Tækifærið til að leiða eitt af sögufrægustu knattspyrnufélögum Englands og endurvekja þá dýrð sem það á skilið mun lifa með mér alla ævi. Að deila þeirri reynslu með öllum þeim sem elska þetta félag í raun og veru og sjá áhrifin sem það hafði á þá er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma."

„Þetta kvöld í Bilbao var hápunktur tveggja ára erfiðisvinnu, hollustu og óhagganlegrar trúar á draum. Það voru margar áskoranir sem þurfti að sigrast á og mikill hávaði fylgir því að reyna að ná því sem margir sögðu að væri ómögulegt."

„Við höfum einnig lagt grunninn að því að þetta félag ætti ekki að þurfa að bíða í 17 ár í viðbót eftir næsta árangri. Ég hef gríðarlega trú á þessum hópi leikmanna og veit að það eru miklu meiri möguleikar og vexti í þeim."

„Ég vil einlæglega þakka þeim sem eru lífæð félagsins, stuðningsmönnunum. Ég veit að það voru erfiðir tímar en ég fann alltaf að þeir vildu að ég tækist á við þetta og það gaf mér alla þá hvatningu sem ég þurfti til að halda áfram."

Thomas Frank, stjóri Brentford, er sagður efstur óskalista Tottenham een félagið þarf að borga um 9 milljónir punda til að fá hann lausann frá Brentford. Þá þarf Tottenham að borga Postecoglou um fjórar milljónir punda ofan á tvær milljónir sem hann fékk í bónus fyrir að vinna Evrópudeildina.
Athugasemdir
banner