Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. mars 2026 10:05
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Síðasta ótímabæra spáin á X977 í dag
Haraldur Árni Hróðmarsson.
Haraldur Árni Hróðmarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag verður síðasta ótímabæra spáin fyrir Bestu deildina 2026 á dagskrá.

Rætt verður um öll liðin, farið yfir helstu fréttir og frammistöðuna á undirbúningstímabilinu.

Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars verða í fiskabúrinu og sérstakur gestur verður fótboltaþjálfarinn Haraldur Árni Hróðmarsson sem hefur verið að lýsa leikjum undirbúningstímabilsins á Livey.


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner