Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   lau 07. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Evrópuslagir í Madríd og Bilbao
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það er nóg um að vera í spænska boltanum í dag. Eftir heimaleiki hjá Osasuna og Levante eru afar spennandi leikir á dagskrá seinni partinn.

Atlético Madrid tekur á móti Real Sociedad í evrópubaráttunni og gæti Orri Steinn Óskarsson komið við sögu eftir að vera búinn að jafna sig af minniháttar vöðvameiðslum á kálfa.

Atlético er í góðri stöðu í baráttunni um meistaradeildarsæti, á meðan Sociedad er fimm stigum frá evrópusæti og með leikinn í dag til góða.

Að lokum spilar Athletic Bilbao heimaleik við Spánarmeistara og topplið Barcelona, sem geta endurnýjað fjögurra stiga forystu á toppi La Liga með sigri.

Athletic hefur verið að ná góðum úrslitum upp á síðkastið eftir lélegan fyrri hluta tímabils og er jafnt nágrönnum sínum í Real Sociedad á stöðutöflunni, fimm stigum frá evrópusæti.

Leikir dagsins
13:00 Osasuna - Mallorca
15:15 Levante - Girona
17:30 Atletico Madrid - Real Sociedad
20:00 Athletic Bilbao - Barcelona
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 26 21 1 4 71 26 +45 64
2 Real Madrid 27 20 3 4 56 23 +33 63
3 Atletico Madrid 26 15 6 5 43 23 +20 51
4 Villarreal 26 16 3 7 48 31 +17 51
5 Betis 26 11 10 5 42 32 +10 43
6 Celta 27 10 10 7 37 30 +7 40
7 Espanyol 26 10 6 10 33 39 -6 36
8 Real Sociedad 26 9 8 9 38 38 0 35
9 Athletic 26 10 5 11 30 36 -6 35
10 Osasuna 26 9 6 11 30 30 0 33
11 Getafe 26 9 5 12 21 29 -8 32
12 Vallecano 26 7 9 10 26 32 -6 30
13 Sevilla 26 8 6 12 34 41 -7 30
14 Girona 26 7 9 10 27 42 -15 30
15 Valencia 26 7 8 11 27 39 -12 29
16 Alaves 26 7 6 13 23 34 -11 27
17 Elche 26 5 11 10 34 39 -5 26
18 Mallorca 26 6 6 14 29 42 -13 24
19 Levante 26 5 6 15 28 44 -16 21
20 Oviedo 26 3 8 15 16 43 -27 17
Athugasemdir
banner