Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
   mán 07. maí 2018 11:00
Magnús Már Einarsson
Óli Stefán: Það er alvöru rígur
Óli Stefán Flóventsson.
Óli Stefán Flóventsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er alvöru rígur. Sagan segir manni það að þetta eru alltaf skemmtilegir leikir og hörkuleikir," segir Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur, um leik liðsins gegn Keflavík í kvöld klukkan 19:15.

Nýliðar Keflavíkur náðu í stig gegn Stjörnunni í fyrstu umferð á meðan Grindavík tapaði gegn FH.

„Við berum virðingu fyrir andstæðingnum og leiknum og erum klárir í alla leiki. Ég hef séð Keflavík og spilað við þá og þeir eru með hörkulið. Við búumst við erfiðasta leik sumarsins."

Óli Stefán reiknar með að mætingin verði góð á þennan Suðurnesjaslag í kvöld.

„Ég efast ekki um það. Við spiluðum hörkuleiki við þá í Inkasso-deildinni fyrir tveimur árum síðan og þá nánast fylltum við stúkuna. Ég reikna með svipaðri stemningu á stærsta sviðinu."

Beinar textalýsingar:
19:15 FH - Breiðablik
19:15 Víkingur R. - Valur
19:15 Keflavík - Grindavík
Athugasemdir
banner