Þeir Hallgrímur Mar Steingrímsson og Rodri voru ekki í leikmmannahópi KA í gær þegar liðið tók á móti KR í þriðju umferð neðri hlutans í Bestu deildinni.
Þeir eru báðir lykilmenn í liðinu og í byrjunarliðinu þegar KA stillir upp sínu sterkasta liði.
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn og sagði frá því hvers vegna Grímsi og Rodri hefðu ekki verið í hópnum.

Lestu um leikinn: KA 0 - 4 KR
„Rodri fór úr axlarlið í annað sinn í sumar á æfingu um daginn. Hann er jafnvel klár í næsta leik. Grímsi var stífur aftan í læri og við vildum ekki taka neina sénsa. Við erum með stóran hóp með góðum leikmönnum," sagði Haddi.
Í fyrra skiptið sem Rodri fór úr axlarlið var í leiknum gegn Vestra í júlí.
Stöðutaflan

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir