Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   lau 09. maí 2026 20:18
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guardiola sló á létta strengi - „Koma svo West Ham"
Mynd: EPA
Pep Guardiola var mjög léttur á fréttamannafundi eftir 3-0 sigur Man City gegn Brentford í dag.

Man City er í 2. sæti, tveimur stigum á eftir Arsenal, og þarf því að treysta á að Arsenal tapi stigum til að eiga möguleika á Englandsmeistaratitlinum.

Arsenal mætir West Ham á morgun sem er í bullandi fallbaráttu og þarf á stigunum að halda. Guardiola sló á létta strengi þegar hann var búinn að svara spurningum blaðamanna í dag. Hann viðurkenndi að hann muni horfa spenntur á leikinn á morgun.

„Koma svo Irons (e. Come on you Irons)," sagði Guardiola og krossaði hendurnar fyrir ofan höfuðið en Irons er gælunafn West Ham.

„Við erum að berjast við svipað lið og Liverpool hefur verið. Í úrslitum Meistaradeildarinnar án þess að tapa leik og hafa verið á toppnum nánast allt tímabilið," sagði Guardiola.

„Þetta er ekki í okkar höndum og þetta fer eftir því hvort þeir tapi stigum en allt sem við getum er að vinna aftur á miðvikudaginn, spila úrslitaleik enska bikarsins og fara til Bournemouth."

„Ég elska að vera hérna aftur. Við munum að minnsta kosti hafna í 2. sæti og ég elska það. Ég naut mín ekki á síðasta tímabili. Við erum með deildabikarinn í vasanum, úrslit enska bikarsins á Wembley er fallegasti dagur tímabilsins og ég elska það," sagði Guardiola að lokum.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner