Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   lau 09. maí 2026 21:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Þórir Jóhann fékk tækifæri gegn Juventus - Meistararnir unnu
Mynd: EPA
Þórir Jóhann Helgason fékk sjaldgæft tækifæri hjá Lecce þegar liðið fékk Juventus í heimsókn í ítölsku deildinni í kvöld.

Dusan Vlahovic kom Juventus yfir eftir aðeins tólf sekúndna leik. Þetta var fyrsti byrjunarliðsleikurinn hans síðan í nóvember en hann hefur verið að berjast við meiðsli.

Juventus kom boltanum tvisvar í netið í seinni hálfleik en Vlahovic var dæmdur rangstæður í bæði skiptin. Markið í upphafi leiksins reyndist vera sigurmarkið.

Þórir Jóhann kom inn á þegar 20 mínútur voru til loka venjulegs leiktíma en hann hefur aðeins komið við sögu í átta leikjum í deildinni á tímabilinu.

Juventus styrkti stöðu sína í Meistaradeildarbaráttunni. Liðið er í 3. sæti með 68 stig þegar tvær umferðir eru eftir. Liðið er fjórum stigum á undan Roma sem er í 5. sæti og á leik til góða. Lecce er fjórum stigum frá fallsæti.

Ítalíumeistarar Inter unnu öruggan sigur á Lazio sem var þegar úr leik í Evrópubaráttunni. Cagliari tapaði gegn Udinese og er ekki alveg laust við fall.

Lecce 0 - 1 Juventus
0-1 Dusan Vlahovic ('1 )

Cagliari 0 - 2 Udinese
0-1 Adam Buksa ('56 )
0-2 Idrissa Gueye ('90 )

Lazio 0 - 3 Inter
0-1 Lautaro Martinez ('6 )
0-2 Petar Sucic ('39 )
0-3 Henrikh Mkhitaryan ('76 )
Rautt spjald: Alessio Romagnoli, Lazio ('59)


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 38 27 6 5 89 35 +54 87
2 Napoli 38 23 7 8 58 36 +22 76
3 Roma 38 23 4 11 59 31 +28 73
4 Como 38 20 11 7 65 29 +36 71
5 Milan 38 20 10 8 53 35 +18 70
6 Juventus 38 19 12 7 61 34 +27 69
7 Atalanta 38 15 14 9 51 36 +15 59
8 Bologna 38 16 8 14 49 46 +3 56
9 Lazio 38 14 12 12 41 40 +1 54
10 Udinese 38 14 8 16 45 48 -3 50
11 Sassuolo 38 14 7 17 46 50 -4 49
12 Parma 38 11 12 15 28 46 -18 45
13 Torino 38 12 9 17 44 63 -19 45
14 Cagliari 38 11 10 17 40 53 -13 43
15 Fiorentina 38 9 15 14 41 50 -9 42
16 Genoa 38 10 11 17 41 51 -10 41
17 Lecce 38 10 8 20 28 50 -22 38
18 Cremonese 38 8 10 20 32 57 -25 34
19 Verona 38 3 12 23 25 61 -36 21
20 Pisa 38 2 12 24 26 71 -45 18
Slapp
banner
banner
banner