Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   sun 10. maí 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
NBA stjarna skaut föstum skotum á Arsenal
Mynd: EPA
Franski NBA körfuboltaleikmaðurinn Victor Wembanyama skaut föstum skotum á Arsenal þegar hann var spurður út í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þar sem PSG mætir Arsenal.

Wembanyama er aðeins 22 ára gamall en er einn besti körfuboltamaður heims um þessar mundir. Steve Nash, fyrrum leikmaður í NBA, spurði hann í þættinum Nightcap Prime hvort hann haldi með PSG eða Arsenal.

„PSG að sjálfsögðu. PSG mun gera leikinn svo skemmtilegan því ég veit að Arsenal mun ekki gera það," sagði Wembanyama.

Nash er harður stuðningsmaður Tottenham og hafði gaman af svari Wembanyama.


Slapp
banner