Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   sun 10. maí 2026 15:04
Brynjar Ingi Erluson
England: Aston Villa og Everton töpuðu stigum - Anderson kom Forest til bjargar
Zian Flemming bjargaði stigi gegn Villa
Zian Flemming bjargaði stigi gegn Villa
Mynd: Burnley
Mateta skemmdi fyrir Everton
Mateta skemmdi fyrir Everton
Mynd: EPA
Elliot Anderson náði í stig fyrir Forest
Elliot Anderson náði í stig fyrir Forest
Mynd: EPA
Aston Villa og Everton töpuðu mikilvægum stigum í Evrópubaráttunni í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Villa-menn þurftu sigur til að komast upp fyrir Liverpool og í fjórða sætið.

Ekki fór það vel af stað. Á 9. mínútu skoraði Jaidon Anthony af stuttu færi eftir að Emi Martinez hafði varið skot Lesley Ugochukwu út í teiginn. Þar var Anthony eins og gammur í teignum, klár í að setja boltann í netið.

Slök byrjun hjá Villa sem náði þó að jafna áður en hálfleikurinn var úti með skallamarki Ross Barkley eftir hornspyrnu John McGinn.

Þeir nýttu sér þann meðbyr inn í seinni hálfleikinn. Ollie Watkins kom Villa yfir á 56. mínútu er Martínez átti langa sendingu yfir vörn Burnley og fyrir Watkins sem náði að leka boltanum í netið.

Forysta Villa varði þó aðeins í tæpar þrjár mínútu því Zian Flemming jafnaði metin. Burnley vann boltann á vinstri vængnum og var það Ugochukwu sem kom boltanum inn á Hannibal Mejbri sem átti þessa stórskemmtilegum hælsendingu á Flemming sem setti boltann framhjá Martínez sem stóð grafkyrr á línunni.

Villa-menn fengu færin til þess að gera út um leikinn. McGinn fór illa með dauðafæri er hann var alveg frír á fjærstönginni en setti skalla sinn framhjá og þá vildi Emi Buendía fá vítaspyrnu eftir viðskipti sín við Kyle Walker í teignum en fékk ekki.

Lokatölur á Turf Moor, 2-2, og Villa áfram í 5. sæti með 59 stig, eins og Liverpool, sem er í 4. sæti með betri markatölu. Burnley er í næst neðsta sæti með 21 stig.

Everton hefur þá nánast sagt sig úr baráttunni um Evrópusæti eftir að hafa gert 2-2 jafntefli við Crystal Palace á Selhurst Park.

James Tarkowski kom Everton yfir á 6. mínútu með skoti af stuttu færi eftir hornspyrnu en Ismaila Sarr jafnaði metin á 34. mínútu með tuttugasta marki sínu í öllum keppnum fyrir Palace á þessu tímabili.

Portúgalinn Beto kom Everton aftur yfir í upphafi síðari hálfleiks, en franski landsliðsmaðurinn Jean-Philippe Mateta sá til þess að ná í stig fyrir Palace með laglegu vinstri fótar skoti úr miðjum teignum.

Þessi úrslit eru skelfileg fyrir Everton sem er í 10. sæti með 49 stig og nú fjórum stigum frá Evrópusæti þegar tvær umferðir eru eftir, en Palace er í 14. sæti með 44 stig.

Nottingham Forest og Newcastle United skildu jöfn, 1-1, á City Ground-leikvanginum.

Harvey Barnes skoraði fyrir Newcastle á 74. mínútu eftir frábæra stungusendingu Jacob Ramsey en fjórtán mínútum síðar jafnaði Elliot Anderson er hann fékk sendingu inn fyrir og skoraði úr þröngu færi.

Stórt stig fyrir Forest sem er nánast búið að bjarga sér frá falli, en liðið er sjö stigum fyrir ofan fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir. Þetta mun þó velta á úrslitum hjá Tottenham og West Ham sem eru í 17. og 18. sæti deildarinnar.

Úrslit og markaskorarar:

Crystal Palace 2 - 2 Everton
0-1 James Tarkowski ('6 )
1-1 Ismaila Sarr ('34 )
1-2 Beto ('47 )
2-2 Jean-Philippe Mateta ('77 )

Nott. Forest 1 - 1 Newcastle
0-1 Harvey Barnes ('74 )
1-1 Elliot Anderson ('88 )

Burnley 2 - 2 Aston Villa
1-0 Jaidon Anthony ('8 )
1-1 Ross Barkley ('42 )
1-2 Ollie Watkins ('56 )
2-2 Zian Flemming ('59 )
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 23 7 5 67 26 +41 76
2 Man City 35 22 8 5 72 32 +40 74
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 36 17 8 11 50 46 +4 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 9 13 52 49 +3 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 36 13 10 13 46 46 0 49
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 36 13 7 16 50 52 -2 46
14 Crystal Palace 35 11 11 13 38 44 -6 44
15 Nott. Forest 36 11 10 15 45 47 -2 43
16 Leeds 35 10 13 12 47 52 -5 43
17 Tottenham 35 9 10 16 45 54 -9 37
18 West Ham 35 9 9 17 42 61 -19 36
19 Burnley 36 4 9 23 37 73 -36 21
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner
banner