Faðir þýska þjálfarans Hansi Flick lést í morgun en spænska félagið Barcelona greindi frá þessum sorgarfréttum á heimasíðu sinni í dag.
Flick, sem er 61 árs gamall, getur tryggt Spánarmeistaratitilinn annað árið í röð þegar liðið fær Real Madrid í heimsókn í El Clásico í kvöld.
Mikil sorg ríkir hjá Flick sem missti föður sinn í morgun, en samkvæmt Sport mun hann samt stýra Börsungum í leiknum gegn Real Madrid.
„FC Barcelona og öll Börsungafjölskyldan vill senda hlýjar kveðjur til Hansi Flick í kjölfar andláts föður hans. Við deilum sársauka hans og styðjum við bakið á honum á þessum erfiðu tímum hjá honum og fjölskyldu hans,“ sagði Barcelona í yfirlýsingu.
Barcelona þarf aðeins eitt stig til þess að tryggja titilinn, en Flick verður væntanlega fjarverandi þegar liðið spilar við Alaves á miðvikudag.
FC Barcelona and the entire blaugrana family wish to send all our love to Hansi Flick after the passing of his father. We share in your sorrow and our thoughts are with you and your family during this difficult time.
— FC Barcelona (@FCBarcelona) May 10, 2026
Der FC Barcelona und die ganze blaugrana Familie möchten Hansi… pic.twitter.com/uBFPTMyQCl



