Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   lau 09. maí 2026 19:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gunnar Heiðar talar um barnaleg mistök - „Verðum að gera betur í meistaraflokki"
Lengjudeildin
Mynd: HK
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK, var að vonum svekktur eftir fyrsta tap HK í sumar en liðið tapaði 4-3 gegn Vestra á Ísafirði í dag. Fótbolti.net ræddi við hann eftir leikinn.

„Maður er í þessu til að vinna leiki. Við vorum með mjög góðan undirbúning. Mér fannst við stíga vel á þá, skorum fyrsta markið og fáum góð tækifæri til að ná inn 2-0 markinu. Það hefði breytt leiknum mikið," sagði Gunnar Heiðar.

„Í staðin gerum við barnaleg mistök í þessum tveimur mörkum í fyrri hálfleik. Þá eru þeir komnir með yfirhöndina sem mér fannst ekki sanngjarnt en það er sanngjarnt því við bjóðum upp á það. Það er eitthvað sem við þurfum að laga. Við verðum að gera betur en þetta í meistaraflokki."

HK fær Víking í heimsókn í bikarnum á miðvikudaginn.

„Við höldum áfram að byggja ofan á það sem við erum að gera. Tökum þessa hluti sem við gerðum ekki nægilega vel í dag og bætum fyrir næsta leik. Það er gamla góða bara næsti leikur og það er að fá Íslandsmeistarana heim í Kórinn. Við ætlum að taka vel á móti þeim og taka vel á þeim, gefa þeim alvöru leik. Vonandi verður stúkan full og mikil stemning," sagði Gunnar Heiðar.
Slapp
banner
banner