Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
   lau 09. maí 2026 19:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Elfar Árni: Viljum ekki hafa einhvern sem vill ekki vera hérna
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Völsungur tapaði 3-0 gegn Þrótti í 3. umferð Lengjudeildarinnar í dag. Fótbolti.net ræddi við Elfar Árna Aðalsteinsson, bráðabirgðaþjálfara liðsins, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Völsungur 0 -  3 Þróttur R.

„Maður vill nátturulega aldrei tapa á heimavelli sérstaklega. Við gefum þeim eitt mark í forgjöf á fyrstu mínútum, sofandaháttur í föstu leikatriði. Mér finnst við bregðast vel við en svo kemur mark númer tvö og þá finnst mér við fara úr okkar kerfi og erum út um allt og missum leikinn í svolítið rugl," sagði Elfar Árni.

Jochum Magnússon var í markinu hjá Völsungi í dag en hann kom til liðsins frá Víkingi á lokadegi félagaskiptagluggans. Jeffrey Baltus, sem var í markinu í fyrstu tveimur leikjunum, er farinn frá félaginu.

„Hann kom í samfloti með þjálfaranum sem var hérna. Hann vildi ekki vera hér lengur, við viljum ekki hafa einhvern sem vill ekki vera hérna í þessu verkefni og til allrar hamingju fundum við flottan strák í honum Jochum og við erum mjög spenntir að gefa honum tækifæri."

Elfar Árni er spilandi þjálfari liðsins en hann er að berjast við erfið meiðsli.

„Fókusinn er á öðrum stað núna. Maður er að reyna sinna þessu verkefni og þá setur maður sjálfan sig í 2. sæti á meðan. Vonandi get ég farið að einbeita mér af því fljótlega. Ég get ekki sagt af eða á með það, vonandi get ég gert það," sagði Elfar Árni.
Slapp
banner