Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   lau 09. maí 2026 22:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu markið: Orri skoraði í dramatísku jafntefli
Mynd: EPA
Orri Steinn Óskarsson var á skotskónum þegar Real Sociedad fékk Real Betis í heimsókn í spænsku deildinni í kvöld.

Orri var nálægt því að koma Sociedad yfir en Alvaro Valles i marki Betis varði skalla frá honum. Antony sá til þess að Betis var með 1-0 forystu í hálfleik og Abde Ezzalzouli bætti öðru markinu við strax í upphafi seinni hálfleiks.

Orri minnkaði muninn þegar hann skoraði með skoti af stuttu færi um tíu mínútum fyrir leikslok. Stuttu síðar fékk hann gult spjald sem þýðir að hann er kominn í bann og verður ekki með liðinu gegn Girona á útivelli á fimmtudaginn. Sjáðu markið hans hér fyrir neðan.

Sociedad fékk vítaspyrnu í lokin og Mikel Oyarzabal skoraði og bjargaði stigi fyrir liðið. Sociedad er án sigurs í síðustu fimm leikjum. Liðið er í 8. sæti með 44 stig. Betis styrkti stöðu sína í Meistaradeildarbarátunni en liðið er í 5. sæti með 56 stig, sex stigum á undan Celta Vigo þegar þrjár umferðir eru eftir.

Atletico Madrid tapaði gegn Celta Vigo fyrr í dag en Atletico hefur tryggt sér Meistaradeildarsætið. Sevilla vann mikilvægan sigur í fallbaráttunni og Elche og Alaves gerðu markalaust jafntefli í fallbaráttunni.

Sevilla 2 - 1 Espanyol
0-1 Tyrhys Dolan ('56 )
1-1 Andres Castrin ('82 )
2-1 Akor Adams ('90 )

Elche 1 - 1 Alaves
0-1 Toni Martinez ('51 , víti)
1-1 Alvaro Rodriguez ('72 )

Atletico Madrid 0 - 1 Celta
0-1 Borja Iglesias ('62 )

Real Sociedad 2 - 2 Betis
0-1 Antony ('39 )
0-2 Abde Ezzalzouli ('47 )
1-2 Orri Oskarsson ('79 )
2-2 Mikel Oyarzabal ('90 , víti)
Rautt spjald: Aitor Ruibal, Betis ('90)


Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 31 1 6 95 36 +59 94
2 Real Madrid 38 27 5 6 77 35 +42 86
3 Villarreal 38 22 6 10 72 46 +26 72
4 Atletico Madrid 38 21 6 11 62 44 +18 69
5 Betis 38 15 15 8 59 48 +11 60
6 Celta 38 14 12 12 53 48 +5 54
7 Getafe 38 15 6 17 32 38 -6 51
8 Vallecano 38 12 14 12 41 44 -3 50
9 Valencia 38 13 10 15 46 55 -9 49
10 Real Sociedad 38 11 13 14 59 61 -2 46
11 Espanyol 38 12 10 16 43 55 -12 46
12 Athletic 38 13 6 19 43 58 -15 45
13 Elche 38 10 13 15 49 57 -8 43
14 Alaves 38 11 10 17 44 56 -12 43
15 Sevilla 38 12 7 19 46 60 -14 43
16 Osasuna 38 11 9 18 44 50 -6 42
17 Mallorca 38 11 9 18 47 57 -10 42
18 Levante 38 11 9 18 47 61 -14 42
19 Girona 38 9 14 15 39 55 -16 41
20 Oviedo 38 6 11 21 26 60 -34 29
Slapp
banner
banner
banner