Powerade-slúðurpakki dagsins er lentur, en það eru fáir en góðir molar að þessu sinni.
Arsenal og Manchester United eru að missa af brasilíska miðjumanninum Joao Gomes (25), sem er á mála hjá Wolves, en hann er mjög nálægt því að ganga í raðir Atlético Madríd. (Sun)
Bayern München og Real Madrid hafa sett sig í samband við umboðsmenn króatíska varnarmannsins Josko Gvardiol (24), varðandi samningsstöðu hans hjá Manchester City. (Teamtalk)
Luis Enrique, þjálfari Paris Saint-Germain í Frakklandi, er nálægt því að endursemja við félagið. Spánverjinn mun gera fjögurra ára samning. (Sunday Mirror)
Liverpool hefur áhuga á því að fá argentínska markvörðinn Emi Martinez (33) til félagsins frá Aston Villa skyldi brasilíski landsliðsmarkvörðinn Alisson yfirgefa félagið. (TuttoJuve)
Arsenal er opið fyrir því að selja enska framherjann Ethan Nwaneri (19) í sumarglugganum. Chelsea er meðal félaga sem hafa sýnt honum áhuga. (Fabrizio Romano)
Crystal Palace hefur tekið næsta skref í að reyna sannfæra Andoni Iraola, stjóra Bournemouth, um að taka við liðinu er Oliver Glasner hættir með liðið í sumar. Palace er tilbúið að bjóða Iraola þriggja ára samning. (Guardian)
