Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
   sun 10. maí 2026 17:19
Snæbjört Pálsdóttir
Guðni eftir útisigur: „Algjört skólabókadæmi um að nýta breidd“
Kvenaboltinn
Guðni segir breiddina vera einn helsta styrkleika FH-liðsins.
Guðni segir breiddina vera einn helsta styrkleika FH-liðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH vann sterkan 2-1 útisigur á Stjörnunni á Samsungvellinum í 4. umferð Bestu deildarinnar í dag. Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var ánægður með bæði úrslitin og framlag leikmanna af bekknum.

„Bara ánægður, ánægður að koma á erfiðan útivöll og sækja þrjú stig. Ánægður með að tengja sigra. Ánægður með á löngum köflum frammistöðu leikmanna. Þannig bara sáttur í dag.“


Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  2 FH

Annað mark FH kom strax í kjölfar skiptingar hjá Guðna og komu  varamennirnir Berglind Freyja, Elín Björg og Hafrún Birna allar að markinu. Frábær skipting sem skilaði marki

„Já og þetta er það sem að FH liðið hefur fram yfir mörg önnur lið í dag í Bestu deildinni. Við erum með breiðan hóp og við nýtum hópinn.“

„Það sýndi sig í dag að þær sem koma inn á hafa tilgang og breyta leiknum. Það var bara algjört skólabókadæmi um að nýta breidd.“

Guðni ræddi einnig áskoranirnar sem fylgja stórum hópi og gagnrýndi fyrirkomulagið í kringum venslalið.

„Já ég gæti rætt heillengi við þig um hvernig maður myndi vilja sjá apparatið virka hjá KSÍ varðandi þessi venslalið.“

„Ég meina hvað erum við að gera, við eigum að vera að móta og búa til leikmenn og það er rosalega erfitt í þessu umhverfi sem að okkur er boðið upp á í dag.“

„Við erum að reyna að búa til verkefni sjálf fyrst það er ekki í boði að gera það á þann hátt sem maður myndi vilja sjálfur.“

„Hausverkur nei, þetta er jákvætt. Það er spilað þétt og breidd skiptir miklu máli.“

Katla María fór sárþjáð af velli í fyrri hálfleik. 

„Þetta er klárlega hnéið á henni, ég veit það ekki. Ég vona það svo innilega að það sé ekki krossband.“

„Ég ætla ekki að mála skrattann á vegginn en maður er alltaf hræddur þegar um hnémeiðsl er að ræða.“

Næsti leikur FH verður gegn Selfossi á útivelli í Mjólkurbikarnum, hverig leggst það í hann? 

„Bara vel, alltaf gaman að mæta liði sem maður er alla jafna ekki að spila við. Bara verðugt verkefni.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan. 


Slapp
banner
banner