Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   lau 09. maí 2026 18:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Man City saxaði á forskot Arsenal - Doku sjóðandi heitur
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Manchester City 3 - 0 Brentford
1-0 Jeremy Doku ('60 )
2-0 Erling Haaland ('75 )
3-0 Omar Marmoush ('90 )

Man City heldur pressunni á Arsenal í titilbaráttunni eftir góðan sigur á Brentford í dag.

Brentford byrjaði leikinn af miklum krafti. Þeir sköpuðu mikla hættu snemma leiks eftir langt innkast en Matheus Nunes náði að bjarga á síðustu stundu.

Man City sótti í sig veðrið og Erling Haaland fékk góð tækifæri til að koma liðinu yfir en það tókst ekki.

Kevin Schade var nálægt þvi að sleppa í gegn eftir 20 mínútna leik en hann féll í baráttunni við Matheus Nunes. Nunes náði örlítilli snertingu á boltann og slapp við refsingu.

Þá fékk Bernardo Silva gult spjald fyrir að gefa Nathan Collins olnbogaskot í fótinn meðan hann lá í jörðinni. VAR að það hafi ekki verið ástæða til að reka hann af velli.

Jeremy Doku kom Man City yfir eftir klukkutíma leik með góðu skoti í hornið. Doku hefur verið sjóðandi heitur að undanförnu en hann hefur komið að sex mörkum í síðustu fjórum leikjum.

Brentford vildi fá vítaspyrnu um tíu mínútum síðar þegar Nunes ýtti í Schade en ekkert dæmt.

Erling Haaland bætti öðru marki City stuttu síðar. Antoine Semenyo átti sendingu inn á teiginn og boltinn barst til Haaland sem skoraði af öryggi. Omar Marmoush innsiglaði sigur Man City í blálokin eftir sendingu frá Haaland.

Man City er í 2. sæti með 74 stig, tveimur stigum á eftir Arsenal þegar þrjár umferðir eru eftir. Brentford tapaði dýrmætum stigum í Evrópubaráttunni. Liðið er í 8. sæti með 51 stig, tveimur stigum á eftir Brighton en liðin eiga tvo leiki eftir.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner