Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   sun 10. maí 2026 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Messi bætti met í bandarísku deildinni
Mynd: EPA
Lionel Messi bætti met í bandarísku MLS deildinni þegar hann átti frábæran leik í 4-2 sigri Inter Miami gegn Toronto FC í gærkvöldi.

Rodrigo de Paul sá til þess að Inter Miami var marki yfir í hálfleik. Luis Suarez og Sergio Reguilon bættu við sitthvoru markinu en Messi lagði upp bæði mörkin.

Hann skoraði síðan fjórða mark liðsins áður en Toronto svaraði með tveimur mörkum í lokin.

Messi hefur komið að 100 mörkum með beinum hætti í 64 leikjum. Enginn hefur verið fljótari að ná þessum áfanga. Hann bætti met Sebastian Giovinco, fyrrum leikmanns Toronto, sem náði því í 95 leikjum.
Slapp
banner
banner