Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   lau 09. maí 2026 19:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Venni: Þurfum að hreiðra um okkur á toppnum
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net ræddi við Sigurvin Ólafsson, þjálfara Þróttar, eftir sigur á Völsungi í dag. Þróttur er á toppi Lengjudeildarinnar með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir.

Lestu um leikinn: Völsungur 0 -  3 Þróttur R.

„Það var ljúft að ná forystunni strax, það kom leiknum í þægilega stöðu. Það getur allt gerst og miðað við marga aðra leiki var þetta þægilegt," sagði Venni.

„Ef þú nærð forystu snýst þetta um um að gefa ekki færi á sér og hleypa andstæðingnum inn í leikinn. Það leiðir oft til þess að menn verða rólegri og öruggari. Hins vegar erum við með ótal opnanir og dauðafæri í seinni hálfleik til að endanlega aflífa þennan leik en ég kvarta ekki."

Kári Kristjánsson spilaði allan leikinn en hann kom aftur til liðsins á dögunum eftir stutta dvöl hjá FH.

„Ég er svo fljótur að gleyma, mér finnst eins og hann hafi ekki farið. Hann smellpassar inn í þetta eins og skot, gott og gaman að vera búinn að endurheimta hann."

Venna líður vel á toppnum.

„Það er ómögulegt (að biðja um meira). Nú er verkefnið hvernig við höndlum það og að líða vel á toppnum. Það er kalt á toppnum en við þurfum að hreiðra um okkur þar."
Slapp
banner