Stockport County er skrefi nær því að komast í úrslit C-deildarumspilsins eftir 1-0 sigur liðsins á Stevenage í fyrri undanúrslitaleiknum á Lamex-leikvanginum í Stevenage.
Benoný Breki Andrésson er á mála hjá Stockport en hann kom inn af bekknum í byrjun uppbótartímans og aðeins þremur mínútum síðar gerði Ben Osborn ótrúlega mikilvægt sigurmark sem Benoný átti sinn þátt í.
Framherjinn virtist vera sloppinn í gegn þegar hann missti boltann frá sér og til Osborn sem setti boltann í autt markið.
Mark sem gæti reynst mikilvægt fyrir síðari leikinn sem er spilaður á heimavelli Stockport.
Sigurvegarinn mun síðan mæta annað hvort Bolton Wanderers eða Bradford City í hreinum úrslitaleik á Wembley.
Davíð Kristján Ólafsson kom þá inn af bekknum hjá AEL Larissa í 1-1 jafntefli gegn Asteras Tripolis í fallriðli grísku úrvalsdeildarinnar. Larissa er í neðsta sæti deildarinnar með 26 stig.
Heading back to Edgeley Park with a BIG win! ????#StockportCounty pic.twitter.com/2rgaZTxRXq
— Stockport County (@StockportCounty) May 9, 2026



