Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
banner
   lau 09. maí 2026 17:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Slot bjartsýnn: Verður allt annað á næstu leiktíð
Mynd: EPA
Stuðningsmenn Liverpool bauluðu á liðið eftir markalaust jafntefli gegn Chelsea í dag.

Tímabilið hefur verið gríðarleg vonbrigði fyrir ríkjandi Englandsmeistarana. Arne Slot skilur pirring stuðningsmanna liðsins en hann fullvissar þá um að næsta tímabil verði mun betra.

„Stuðningsmenn mega hafa sína skoðun á þessu tímabili, það mun ekki breytast. En ef sumarið verður eins og við ætlum okkur þá er ég 100% viss um að við verðum allt annað lið á næstu leiktíð," sagði Slot.

„Öðruvísi hvað varðar úrslit og hvernig þetta lítur allt út. Þetta er ekki alltaf svo einfalt því maður veit hvað við þurfum að gera, það er ekki alltaf hægt að ná því sem við nákvæmlega viljum. Fyrir mére er ljóst hvað vantaði uppá á þessu tímabili."

„Við erum að reyna, eitt sem vantar uppá eru leikmenn í formi. Leikmenn sem eru til staðar núna sýndu í seinni hálfleik að þeeir vilja gefa allt í þetta," sagði Slot að lokum.
Slapp
banner