
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari segist ætla að gera „spennandi breytingar“ á byrjunarliði Íslands fyrir leikinn gegn Norður-Írlandi á morgun.
Eftir öflugan sigur gegn Skotum er komið að öðrum vináttulandsleik, nú í Belfast.
Hákon í markinu og Sverrir klár
Á fréttamannafundi á Windsor Park var Arnar spurður að því hvort markvörðurinn Elías Rafn Ólafsson, sem fékk mikið lof fyrir frammistöðuna gegn Skotlandi, yrði aftur í markinu?
„Nei," svaraði Arnar og hélt svo áfram:
Eftir öflugan sigur gegn Skotum er komið að öðrum vináttulandsleik, nú í Belfast.
Hákon í markinu og Sverrir klár
Á fréttamannafundi á Windsor Park var Arnar spurður að því hvort markvörðurinn Elías Rafn Ólafsson, sem fékk mikið lof fyrir frammistöðuna gegn Skotlandi, yrði aftur í markinu?
„Nei," svaraði Arnar og hélt svo áfram:
„Þetta er hópurinn sem er að fara að skila okkur á EM og HM í framtíðinni. Nú fær Hákon tækifæri, eða tækifæri?.... hann þarf ekki að sanna neinn skapaðan hlut. Það verða fleiri breytingar á morgun, spennandi breytingar. Ég treysti öllum til að skila sínu í þessu verkefni."
Hákon Rafn Valdimarsson mun því verja markið á morgun. Varnarmaðurinn Sverrir Ingi Ingason fór meiddur af velli gegn Skotum en æfði í dag.
„Hann er klár. Við erum í fínum málum. Ég var að tala við sjúkraþjálfarana. Það er held ég langt síðan menn hafa allir verið svona ferskir. Við misstum Jóa fyrir Skotaleikinn en nú virðast allir vera ferskir, klárir í verkefnið og fara svo í gott langþráð frí," segir Arnar.
Hann býst við öðruvísi leikmynd en við sáum í Glasgow en Norður-Írar hafa ekki eins þekkta leikmenn og Skotland.
„Þeirra leikmenn eru kannski ekki komnir eins langt og þeir skosku, en þetta er ungt og harðduglegt lið. Það er fullt af orku og á heimavelli eru þeir helvíti erfiðir. Þeir eru eins og við að reyna að þróa sinn leik og fikra sig áfram. Ég held að þetta verði áhugaverður leikur. Sigurinn gegn Skotum var öflugur en það er ýmislegt sem við getum lagað. Við færumst nær og nær lokatakmarkinu sem er að verða klárir í haust."
Leikur Norður-Írlands og Íslands á morgun hefst klukkan 18:45 að íslenskum tíma annað kvöld.
Athugasemdir