Heimild: Dr. Football | Vísir
Birgir Ólafur Helgason fjallaði um reglur FIFA um uppeldis- og samstöðubætur, með hliðsjón af íslenskum fótbolta, í meistaraverkefni sínu við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Birgir var gestur í hlaðvarpsþættinum Dr. Football og sagði að íslensk félög væru ekki alltaf meðvituð um sínar skyldur og sín réttindi þegar kæmi að uppeldis- og samstöðubótum. Uppeldisbætur verður að greiða til þeirra félaga sem leikmenn spila hjá frá 12-23 ára aldurs.
Birgir var gestur í hlaðvarpsþættinum Dr. Football og sagði að íslensk félög væru ekki alltaf meðvituð um sínar skyldur og sín réttindi þegar kæmi að uppeldis- og samstöðubótum. Uppeldisbætur verður að greiða til þeirra félaga sem leikmenn spila hjá frá 12-23 ára aldurs.
Hann nefndi mál Gilson Correia sem kom frá Portúgal til ÍBV í mars 2019. Correia var undir 23 ára aldri þegar hann kom til ÍBV og uppeldisfélög hans gátu því gert kröfu um uppeldisbætur.
„Það er leitt að segja það en Eyjamenn voru ekki nægilega vel fræddir um þessar reglur. Það sem gerist í kjölfarið á því að hann skrifar undir samning við Eyjamenn er að portúgölsku uppeldisfélögin hans, sem voru nota bene níu talsins, hafa samband og gera kröfu um uppeldisbætur," segir Birgir í Dr. Football en Vísir fjallar um málið.
Það fóru mál fjögurra félaga fyrir FIFA og þrjú þessara mála töpuðust af hálfu ÍBV. Eyjamenn sitja eftir með 17 milljóna króna tap út af þessum leikmanni.
Correia lék aðeins ellefu leiki fyrir ÍBV áður en hann yfirgaf félagið en hann stóð ekki undir væntingum.
Sambærilegt dæmi er frá því að Fram fékk til sín Brasilíumanninn Fred sem er enn hjá félaginu. Hann kom til félagsins 2018. Fram fékk reikning upp á vel yfir tíu milljónir. Að sögn Birgis náði Framarar að prútta verðmiðann aðeins niður, um einhver 30 prósent, sem bjargaði þeim frá enn stærra tapi.
Athugasemdir


