Arsenal vill tyrkneska stjörnu - Liverpool og Man Utd skoða miðjumenn á Ítalíu - Modric á förum frá Real Madrid?
   lau 12. apríl 2025 22:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sædís lagði upp og er með fullt hús stiga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sædís Rún Heiðarsdóttir lagði upp mark í naumum sigri Valerenga gegn Lyn í þriðju umferð deildarinnar í dag.

Valerenga var með 1-0 forystu í háflleik og eftir um klukkutíma leik skoraði Olaug Tvedten eftir sendingu frá Sædísi. Lyn svaraði með tveimur mörkum en Valerenga náði að skora sigurmarkið á lokamínútum leiksins.

Valerenga er á toppnum með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. Liðið er með markatöluna 10-2.

Glódís Perla Viggósdóttir var ekki í leikmannahópi Bayern gegn Frankfurt í toppslag vegna meiðsla.

Liðið vann leikinn 3-0 og er komið með níu stiga forystu á Frankfurt á toppnum.
Athugasemdir
banner
banner