Man Utd reynir við Mbeumo - Arsenal og City hafa áhuga á Rodrygo - Real Madrid horfir til leikmanna í ensku deildinni
   mán 05. maí 2025 12:08
Elvar Geir Magnússon
Maddison ekki meira með á tímabilinu og missir af mögulegum úrslitaleik
Mynd: EPA
Enskir fjölmiðlar greina frá því að James Maddison verði ekki með síðustu vikur tímabilsins vegna hnémeiðsla.

Þessi 28 ára leikmaður skoraði en meiddist síðan í 3-1 sigrinum gegn Bodö/Glimt í undanúrslitum Evrópudeildarinnar.

Meiðslin voru alvarlegri en fyrst var talið og liðbönd sködduðust.

Maddison verður ekki með í úrslitaleiknum ef Tottenham kemst þangað. Líklegt er að það verði enskur úrslitaleikur gegn Manchester United en sigurliðið fær Meistaradeildarsæti.
Athugasemdir