Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 12. maí 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Estevao fer ekki með á HM
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Brasilíski kantmaðurinn Estevao virðist ekki eiga neina möguleika á að ná fullum bata fyrir heimsmeistaramótið og fer því ekki með til Bandaríkjanna í sumar.

Estevao hefur þurft að glíma við ýmis meiðslavandræði á sínu fyrsta tímabili með Chelsea og meiddist síðast um miðjan apríl.

Hann meiddist aftan í læri og verður frá keppni í þrjá til sex mánuði, sem þýðir að hann verður í fyrsta lagi klár í slaginn um miðjan júlí sem er alltof seint þar sem HM byrjar um miðjan júní.

   24.04.2026 13:45
Estevao gæti misst af HM


Þetta er mikill skellur fyrir Estevao sem er aðeins 19 ára gamall og hefur skorað 5 mörk í 11 landsleikjum með Brasilíu.

Gamla kempan Neymar gæti tekið sæti Estevao í lokahópnum eftir að þeir voru báðir nefndir í 55 leikmanna úrtakshóp Brasilíu í gær, en Estevao hefur verið dreginn úr hópnum vegna meiðslanna.
Slapp
banner