Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 12. maí 2026 22:43
Brynjar Ingi Erluson
Segir dómara dauðhrædda við að taka ákvarðanir
Mynd: EPA
James Maddison, leikmaður Tottenham, segir dómara dauðhrædda við að taka ákvarðanir á vellinum en þetta sagði hann eftir 1-1 jafntefli liðsins við Leeds.

Maddison sneri aftur á völlinn með Tottenham eftir löng meiðsli er hann kom inn á sem varamaður á 85. mínútu.

Hann féll í teignum eftir viðskipti sín við Lukas Nmecha, en Jarred Gillett, dómari leiksins, dæmdi ekkert.

Þetta var mikilvægur tímapunktur og sérstaklega fyrir Tottenham sem er í harðri fallbaráttu.

„Svona til að hafa hlutina á hreinu. Þessi litla snerting á boltanum sem breytti stefnu hans kom utan á hægri fæti mínum, ekki frá Nmecha og það er nákvæmlega það sem ég sagði dómaranum, en skoðun VAR varði í tuttugu sekúndur. Dómarar eru dauðhræddir við að taka ákvarðanir á vellinum út af VAR. Við höldum samt áfram að berjast. Koma svo, Spurs,“ sagði Maddison á Instagram.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Maddison gagnrýnir dómarastéttina og VAR. Hann gerði það í september og sagði VAR byrja tímabilið hræðilega.

Margir spekingar eru gegn notkun VAR. Alan Shearer hjá BBC segir dómgæsluna verða verri með hverju árinu sem líður. Stephen Warnock segir VAR það versta sem komið hefur fyrir fótboltann og hefur Wayne Rooney tekið í sama streng og sagt tæknina drepa tilfinningalegu hlið fótboltans.

Fulltrúar úr fimm stærstu deildum Evrópu funda með UEFA í sumar til þess að ræða notkun VAR og framtíð tækninnar.
Slapp
banner