Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fös 12. júní 2026 04:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM: Góð endurkoma hjá Suður-Kóreu
In-beom Hwang
In-beom Hwang
Mynd: EPA
Suður-Kórea 2 - 1 Tékkland
0-1 Ladislav Krejci ('59 )
1-1 In-Beom Hwang ('67 )
2-1 Oh Hyun-Gyu ('80 )

Fyrstu umferð í A-riðli á HM er lokið eftir endurkomusigur Suður-Kóreu gegn Tékklandi.

Suður-Kóreumenn voru betri aðilinn í fyrri hálfleik án þess þó að ógna marki Tékka að einhverju viti.

Tékkar náðu forystunni eftir um klukkutíma leik þegar Ladislav Krejci skoraði með skalla eftir langt innkast frá Vladimir Coufal. Þetta var stór stund fyrir Tékka þar sem þetta er fyrsta heimsmeistaramót þjóðarinnar í tuttugu ár.

Stuttu síðar átti Kang-in Lee frábæra sendingu á In-Beom Hwang sem lék á varnarmann og markvörð Tékka og skoraði með laglegu skoti.

Þegar tæpur stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma hélt Tomas Soucek að hann hefði komið Tékkum aftur yfir þegar hann skallaði boltann í netið. Hann var hins vegar rangstæður og markið réttilega dæmt af.

Suður-Kórea komst yfir strax í kjölfarið þegar Oh Huyn-Gyu skoraði eftir sendingu frá In-Beom Hwang. Huyn-Gyu hafði komið inn á sem varamaður fyrir Heung-min Son aðeins tíu mínútum áður.

Seung-Gyu Kim, markvörður Suður-Kóreu, varði stórkostlega frá Adam Hlozek stuttu síðar og varði síðan frá Michal Sadilek í uppbótatíma og frábær sigur Suður-Kóreu í höfn.

Gestgjafar Mexíkó eru á toppnum en Suður-Kórea í öðru sæti. Tékkland og Suður-Afríka eru án stiga. Mexíkó og Suður-Kórea mætast í næstu umferð og Tékkland og Suður-Afríka.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner