Fyrsta umferð Bestu deildarinnar lauk í gær með 3-3 jafntefli Fram og ÍA. Undirritaður tók saman uppaldna leikmenn í byrjunarliðum hvers liðs úr þessari fyrstu umferð.
Miðað er við leiki í 2. flokki og neðar, en þó eru gerðar nokkrar undantekningar og má sjá þær hér fyrir neðan sem og listann.
Þór voru hlutskarpastir í þessum flokki með einungis þrjá aðkomumenn í byrjunarliði sínu. Þar á eftir var Breiðablik með sex uppaldna leikmenn.
Í byrjunarliði Vals voru engir uppaldnir leikmenn sem mættu Þórsurum sem voru, eins og áður segir með átta. Til þess má geta að tveir uppaldnir Þórsarar voru í byrjunarliði Vals og voru því alls tíu uppaldnir Þórsarar sem byrjuðu leikinn á Hlíðarenda.

Uppaldnir í byrjunarliði:
Þór - 8
Breiðablik - 6
ÍBV - 4
KR - 4
ÍA - 3
FH - 3
KA - 3
Fram - 2
Víkingur - 1
Keflavík - 1
Stjarnan - 1
Valur - 0
Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflavíkur, spilaði eitt sumar með 2. flokki Keflavíkur en þar áður hafði hann verið í Njarðvík og er hann því ekki talinn með.
Freyr Sigurðsson, leikmaður Fram, spilaði sömuleiðis með 2. flokki Fram eitt sumar en hann er uppalinn Hornfirðingur og telst hann því ekki sem uppalinn leikmaður.
Þá er Jón Gísli Eyland uppalinn á Sauðárkróki en gekk til liðs við ÍA á sextánda aldursári, hann er ekki talinn sem uppalinn Skagamaður á listanum.