Hinn 17 ára gamli Egill Darri Makan Þorvaldsson var í byrjunarliði FH gegn Fjölni í dag. Leikurinn endaði með 3-2 sigri Hafnfirðinga en sigurmarkið kom á lokamínútum leiksins.
„Það er mjög skemmtilegt að koma hérna í Grafarvoginn og ná í sigur. Ég bjóst ekki við því að byrja en það er gaman að koma inní liðið og strákarnir hafa tekið vel á móti mér." sagði Egill eftir leik.

Lestu um leikinn: Fjölnir 2 - 3 FH
Egill Darri byrjaði í vinstri bakvarðarstöðu FH í fjarveru Hjartar Loga Valgarðssonar. Eins og áður sagði endaði leikurinn 3-2 fyrir FH sem að tyllir sér upp í annað sæti með sigrinum. Egill Darri var ánægður með spilamennskuna og vonast til að fá fleiri sénsa með liðinu.
„Það er bara undir mér komið að standa mig á æfingum og leggja mig fram og vonandi fæ ég að spila meira." sagði Egill að lokum.
Nánar er rætt við Egil Darra í spilaranum.
Athugasemdir