Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður á Ríkisútvarpinu lýsir úrslitaleik Heimsmeistaramótsins í kvöld. Leik Þýskalands og Argentínu á Estádio Maracana vellinum í Rio de Janeiro í Brasilíu. Flautað verður til leiks klukkan 19:00.
Við fengum Einar Örn til að rýna aðeins í leik kvöldsins. Einar Örn lék lengi sem atvinnumaður í handknattleik í Þýskalandi og spáir hann þeim sigri í leiknum í kvöld.
Við fengum Einar Örn til að rýna aðeins í leik kvöldsins. Einar Örn lék lengi sem atvinnumaður í handknattleik í Þýskalandi og spáir hann þeim sigri í leiknum í kvöld.
,,Fólk má vonandi búast við skemmtilegum sóknarleik. Þjóðverjar hafa sýnt okkur það í keppninni að þeir eru vel færir um það. Argentínumenn hafa farið sparlega með það. Ég vona að menn verði ekki smeykir við að sækja og að allir ætli að halda sínu eins og sást í Argentínu - Holland."
Einar Örn er á því að í kvöld eigist við tvö bestu lið heimsins þessa stundina.
,,Argentína hefur aldrei lent undir í mótinu og hafa verið virkilega þéttir. Einhverjir höfðu efasemdir um markmanninn þeirra en hann hefur algjörlega blásið á það."
,,Þjóðverjarnir hafa verið á pari og hafa verið að spila eins og maður bjóst við. Það er engan veginn hægt að dæma þá af spilamennsku þeirra gegn Brasilíu. Þeir hafa litið mjög vel út og mestmegnis verið traustir til baka. Löw er farinn að spila aftur með tvo djúpa miðjumenn og Lahm farinn aftur í bakvörðinn sem ég held að styrki liðið. Það verður líklega vörnin sem mun skera úr um hvort liðið klárar þetta," sagði Einar Örn en hægt að sjá viðtalið við hann í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Taktu þátt í HM-umræðunni á Facebook! Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook þar sem oft skapast líflegar umræður um boltann.
Athugasemdir






















