Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
Jón Dagur: Verður smá eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
banner
   sun 13. ágúst 2017 21:08
Mist Rúnarsdóttir
Melkorka Katrín: Erum allar með brjálað keppnisskap
Kvenaboltinn
Melkorka átti virkilega góðan leik í hjarta varnarinnar hjá FH
Melkorka átti virkilega góðan leik í hjarta varnarinnar hjá FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta eru ekkert smá mikilvæg stig og ótrúlega sætur sigur,“ sagði Melkorka Katrín Fl Pétursdóttir, miðvörður FH, eftir 1-0 sigur á Fylki fyrr í kvöld.

Lestu um leikinn: Fylkir 0 -  1 FH

Það var hart barist um stigin þrjú sem voru í boði í kvöld en Fylkisliðið er í bullandi fallbaráttu og þurfti nauðsynlega á stigum að halda. Melkorka var mjög ánægð með að ná þremur stigum á móti liði í slíkri stöðu.

„Þær komu mjög grimmar í þetta og þetta var upp á líf eða dauða hjá þeim. Þess vegna er mjög sterkt að ná þremur stigum núna.“

Sigurmark leiksins kom ekki fyrr en á lokamínútunni en Melkorka hafði alltaf trú á að FH myndi vinna leikinn.

„Mér fannst þetta alltaf liggja í loftinu. Við áttum þetta alveg 100% skilið. Maður var eiginlega bara að bíða eftir markinu og það var mjög sætt að fá það þarna í lokin.“

Með sigrinum kemst FH í 18 stig og í þægilega stöðu um miðja deild. Hvorki í topp- né botnbaráttu. Melkorka segir FH-konur engu síður harðákveðnar í að safna fleiri stigum.

„ Við erum allar með brjálað keppnisskap og viljum fleiri stig.“

Hægt er að horfa á allt viðtalið við varnarmanninn efnilega í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Athugasemdir
banner