Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 15. janúar 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Knattspyrnuverkefni gæti hlotið nýsköpunarverðlaun forseta Íslands
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru afhent á hverju ári við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og eru sex verkefni að keppast um verðlaunin í ár. Þar á meðal er eitt verkefni sem snýr að íþróttasálfræði, eða öllu heldur knattspyrnusálfræði. Verkefnið heitir Sálfræðileg hæfnisþjálfun ungra knattspyrnuiðkenda á Íslandi.

Guðni Th. Jóhannesson afhendir verðlaunin næsta miðvikudag og gæti verkefni Gríms Gunnarssonar, MSc nema í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík, hlotið vinninginn.

Grímur er að vinna verkefnið fyrir KSÍ og fékk meðal annars aðstoð frá Arnari Þór Viðarssyni, sviðsstjóra knattspyrnusviðs KSÍ, við verkefnið.

Það kemur sífellt betur í ljós hversu mikilvæg sálfræði er í knattspyrnuheiminum og eru fremstu íþróttafélög heims með íþróttasálfræðinga á sínum snærum.

Um verkefnið af vefsíðu Rannís:
Nýjasta tækni og vísindi hafa hjálpað íþróttafólki að verða sterkara, fljótara og tæknilega betra. Til að geta nýtt þessa færni þegar á hólminn er komið þurfa þó aðrir þættir að vera til staðar líka. Sjálfstraust, einbeiting, áhugahvöt, þrautseigja, kvíða- og spennustjórnun, svo fátt eitt sé nefnt, eru allt þættir sem hægt er að þjálfa eins og hverja aðra færni.

Í verkefninu var unnið að því hvernig Knattspyrnusamband Íslands getur stuðlað að sálfræðilegri þjálfun ungra knattspyrnuiðkenda með markvissum, sálfræðilegum mælingum og hagnýtingu þeirra niðurstaðna. Jafnframt var kortlagt hvernig KSÍ getur séð til þess að leikmenn og foreldrar geti leitað sálfræðilegrar aðstoðar eða hugarþjálfunar ef þess er óskað.

Samhliða þessari vinnu var skrifuð bókin Sálfræði í knattspyrnu, sem mun koma út árið 2021. Bókin er ætluð knattspyrnuiðkendum á aldrinum 13-18 ára. Í bókinni er stiklað á stóru á helstu grunnþáttum sálfræði í knattspyrnu og lesendum gefin verkfæri til að stuðla að eigin sálfræðilegri þjálfun. Í lok hvers kafla eru leiðbeiningar til þjálfara um hvernig hægt er að innleiða efni kaflans á æfingum og í leikjum. Þrátt fyrir að verkefnið hafi verið unnið í knattspyrnuumhverfi á öll sú vinna sem var unnin fullt erindi til annarra aðildarfélaga Íþróttasambands Íslands.

Verkefnin sem tilnefnd eru sem öndvegisverkefni eiga það sameiginlegt að vera vel unnin og frumleg en eru afar ólík innbyrðis og sýna vel þá fjölbreytni sem einkennir verkefni sem sjóðurinn veitir styrki til. Þessi fjölbreytni endurspeglar ennfremur það frjóa og margbreytilega starf og nám sem háskólanemar á Íslandi og íslenskir námsmenn erlendis leggja stund á"

Athugasemdir
banner
banner