Sigurvin var mjög sáttur með sína menn eftir 5-2 sigur á Vængjum Júpíters í úrslitaleik C-deildar Fótbolta.net mótsins.
„Já ég get ekki annað verið, þetta var bara mjög fínt hjá þeim.'' Sagði Sigurvin aðspurður hvort hann hafi verið sáttur með sína menn.
„Ég veit það ekki, ég er nú aðeins búinn að reyna en við skulum bara sjá hvernig það þróast en fókusinn verður aðallega bara á unga og efnilega.'' Sagði Sigurvin spurður út í hvort það væri von á einhverjum gömlum KR kempum í KV í sumar.
„Ég fer ekki inn í þetta mót nema til að ná einhverjum árangri, stefnan er þar með að reyna að vinna deildina.'' Sagði Sigurvin að markmið liðsins fyrir sumarið væru.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir