Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu gerði 1-1 jafntefli við Dani í undankeppni heimsmeistaramótsins en leikið var í Vejle. Ísland heldur því öðru sæti riðilsins, liðið hefur tíu stig og er tólf stigum á eftir Sviss sem er í efsta sætinu.
„Frammistaðan í dag hefði getað gefið okkur þrjú stig og áframhaldandi möguleika á umspilssæti. Við skildum allt eftir á vellinum og ég er mjög ánægður með frammistöðu leikmanna en örlítið svekktur með niðurstöðuna," sagði Freyr Alexandersson, þjálfari Íslands.
„Varnarlega var þetta öflugt en við erum virkilega óheppin með markið sem við fáum á okkur. Við sköpuðum okkur fullt af góðum færum og markvarslan þegar var sótt á okkur var mjög góð. Mér fannst þetta flottur leikur."
„Ég ber mikla virðingu fyrir danska liðinu, það hefur verið á háum standard lengi. Við erum óheppin með riðil að mörgu leyti. Nú þurfum við að setja okkur ný markmið."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir






















