Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
Júlíus Mar: Hausinn vildi fara út
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
„Enginn sem óskar sér þess að mæta Víkingi“
Gæðastjórinn ætlar að reikna út xF
Birkir Már: Hefði sagt takk en nei takk væri hann ekki þarna
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
   mán 17. ágúst 2020 20:55
Mist Rúnarsdóttir
Gunnhildur Yrsa: Ég átti náttúrulega að setja eitt
Kvenaboltinn
Gunnhildur Yrsa lék sinn fyrsta leik með Val í kvöld
Gunnhildur Yrsa lék sinn fyrsta leik með Val í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var svona brasleikur en það er búið að vera langt frí og það er gott að við tökum þrjú stig með okkur heim,“ sagði Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, A-landsliðskona og nýjasti leikmaður Vals, eftir 1-0 sigur á KR í kvöld.

Gunnhildur var að snúa aftur í íslenska boltann eftir 8 ára fjarveru og stóð sig vel á miðsvæðinu hjá Val.

„Ég er búin að æfa með liðinu í sirka 10 daga en stelpurnar hafa tekið vel á móti mér og komið mér vel inn í þetta og þjálfararnir líka. Það hefur hjálpað mjög mikið, sagði Gunnhildur um undirbúninginn með Valsliðinu en hrósaði svo andstæðingunum fyrir þéttan varnarleik.

„KR komu mjög sterkar í dag. Þær voru mjög góðar og það var erfitt að brjóta þær niður. Við áttum erfitt með að skapa okkur færi á síðasta þriðjungi en KR-stelpurnar voru mjög þéttar og góðar varnarlega. Þær gerðu þetta mjög erfitt fyrir okkur. Ég átti náttúrulega að setja eitt og tek það á mig.“

Aðstæður til knattspyrnuiðkunar eru undarlegar um þessar mundir vegna Covid og allskyns skilyrði sem liðin þurfa að uppfylla til að hægt sé að spila á Íslandsmótinu. Gunnhildur Yrsa þekkir það vel frá Bandaríkjunum og er lítið að velta fyrir sér öðru en að spila fótbolta.

„Ég var búin að kynnast þessu úti. Reglurnar eru svipaðar, jafnvel strengri úti, þannig að þetta hafði engin áhrif á mig.“

Nánar er rætt við leikmanninn öfluga í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Athugasemdir
banner