Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
   fim 17. október 2024 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Forsíða Marca: Liverpool veit að hann framlengir ekki
Trent Alexander-Arnold.
Trent Alexander-Arnold.
Mynd: Getty Images
Trent Alexander-Arnold, bakvörður Liverpool, er efstur á óskalista Real Madrid og með hverjum deginum virðist það verða líklegra að hann endi þar.

The Athletic sagði frá því í dag að bakvörðurinn sé í forgangi hjá spænska stórveldinu en samningur hans við Liverpool klárast eftir tímabilið. Það hefur lítið heyrst að hann muni framlengja við uppeldisfélagið sitt.

Marca, stærsti íþróttafjölmiðill Spánar, skilar af sér mjög áhugaaverðri forsíðu í dag.

Þar er mynd af Alexander-Arnold og það stendur einfaldlega: „Liverpool veit að hann mun ekki framlengja."

Það verður svo sannarlega áhugavert að fylgjast með því hvað Alexander-Arnold gerir, en hann er með málin í sínum höndum.
Athugasemdir
banner
banner