Ívar Örn Jónsson, leikmaður Víkings í Pepsi-deild karla, var auðvitað ánægður með 5-1 sigur liðsins á Fylki í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í dag.
Ívar Örn skoraði eitt og lagði upp tvö mörk í stórsigrinum en Víkingur er þar með komið í 8-liða úrslit bikarsins.
,,Ég er algjörlega í skýjunum. Þetta var frábært og frábært að komast áfram í bikarnum og frábært að vinna svona stórt," sagði Ívar við Fótbolta.net.
,,Uppleggið var að pressa stíft í byrjun og það skilaði sér í þremur góðum mörkum en svo ætluðum við að falla til baka og halda boltanum en það kannski gekk ekki nógu vel, sérstaklega í byrjun seinni hálfleiks."
,,Við erum að reyna að búa til hausverk fyrir Milos og Óla að velja liðið í næsta leik og ég held að það hafi gengið ágætlega í dag."
,,Mjög ánægður með að skora og leggja upp en maður leggur upp með að reyna að hjálpa liðinu og skila liðinu áfram í bikar."
Ívar var farinn að haltra undir lokin en neitaði að fara af velli. Auk þess fékk hann takka í andlitið frá Stefáni Ragnari Guðlaugssyni og fékk hann myndarlegt glóðurauga að launum.
,,Ég vildi ekki skilja mína menn eftir 10 á móti 11 á lokamínútunum. Maður haltraði og reyndi að gera eitthvað en svo kemur í ljós hvað er að frétta af löppinni."
,,Þetta var ekkert sérstaklega þægilegt. Maður verður myndarlegur í vinnunni á morgun en það kemur í ljós hvort maður sér eitthvað á morgun," sagði hann að lokum.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir





















